Wormlust
Página inicial > W > Wormlust > Á Altari Meistarans

Á Altari Meistarans

Wormlust


Aldauði og gnístur tanna
þú hefur vakið meistarann
Lagt er á höfuð hans ennisdjásn; líkneski dýrsins
Skarlatsrautt -purpurar gimsteinar perlur
Á altari meistarans er gullbikar fullur viðurstyggðar
Brimfullar eru þessar skálar reiðinnar
Hann drekkur þjáninguna þína og árvökul á þér eru hans augu
Athygli hans jafn voðaleg og rödd ofan úr gröfinni
Sú rödd sem lúðrablástur
Herlúðrar hljómandi úr kosmískum fjarska
Hann gerir hreiður úr iðrum þínum
Tómarúm úr hjarta þínu
Hann er klaeddur sólinni og virðist snertur af eldi
Umlykjandi skuggar líkastir grimmu svartnaettinu
Táknin þau öll öskra að seiðurinn hefur verið rofinn
Að lyklar undirdjúpanna hafi á svipstundu umbreyst í hlekki
Altarið sem þú hafðir aetlað sem fangelsi hefur orðið þín eigin gröf

Letra enviada por null

Encontrou algum erro na letra? Por favor, envie uma correção >

Compartilhe
esta música

Ouça estações relacionadas a Wormlust no Vagalume.FM
ESTAÇÕES